27.1.08

Viðgerð

Eftir að hafa farið tvisvar í viðgerð og verið á verkstæðinu í rúmlega mánuð fæ ég ekkert upp á tölvuskjánum annað en munstur sem minnir helst á auglýsingar frá Next. Ó já!

15.1.08

Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn

Að ofan má sjá fallega frænda minn og mig í mátulega miklu magni. Þar sem ég hef ekkert að skrifa um get ég montað mig af honum og sagt ykkur að hann er farinn að hjala og brosa og ætlar að flytja til Íslands með vorinu. Gaman!