16.2.04
Ég ákvað að flýja land um helgina til að komast hjá því að þurfa að velja mér deit á Valentínusardaginn. Ferðinni var heitið til Stokkhólms, á FNUF-“seminar”. Við (Freyja, Jónas og ég) flugum út á föstudagsmorgun, hvert öðru þreyttara og skoðuðum allt fræga fólkið í Leifsstöð. Sigrún Þöll hefði sko unnið frægumannakeppnina hefði hún verið með okkur. Í okkar flugvél var reyndar bara eitt frægmenni enda vélin hálftóm og við með eina sætaröð fyrir hvert okkar. Frábært! Föstudeginum var eytt í H&M, ég er viss um að við vorum nokkra klukkutíma þar inni. Fólk má því eiga von á að vortíska H&M verði sýnd á strætum Reykjavíku næstu daga. Við hittum Heiðu, vinkonu Jónasar, og við fjögur fórum saman út að borða um kvöldið. Sá var sko sniðugur, staðurinn sem við fórum á. Þetta var kínverskur hlaðborðsveitingastaður þar sem maður gat valið úr tilbúnum réttum en einnig blandað saman fersku grænmeti, kjöti, fiski og núðlum að vild, skellt á það sósum og látið manninn í eldhúsinu steikja það. Þetta var sko sniðugt. Minn matur var reyndar svo sterkur að rjúka fór út úr eyrunum á mér. Jónas hinn sænski, Júnas öðru nafni, kom svo á veitingastaðinn og hitti okkur og við fórum öll saman út í langa leit að bar eða skemmtistað til að fara á. Meðalaldurinn á staðnum sem við fórum á náði engan veginn háum aldri mínum, lambakjötið sem þarna var átti ekki í neinum vandræðum með há kollvik eða lina rassa. Ekki óskemmtilegt það!
Morguninn eftir þurftum við að fara eldsnemma á fætur og halda til Emil-í-Kattholti-lands, þar sem fundurinn fór fram. Á fundarstað hittum við Svía og Finna sem einnig tóku þátt í fundinum. Fundurinn var ágætur, mjög fræðandi og frekar skemmtilegur. Þetta var eins konar undirbúningsfundur fyrir fundinn sem haldinn verður eftir hálfan mánuð. Um kvöldið var svo kvölddagskrá, ostar og rauðvín auk ósköp notalegrar stemmningar og morðingjaleiks. Á sunnudagsmorgun héldu fundarhöld svo áfram í smástund en svo þurftum við Íslendingarnir að halda heim á leið, ekki leiðinleg heimför þar sem ég fékk aftur röð fyrir mig og sat í sömu röð og tveir mjög myndarlegir menn. Sem sé góður endir á velheppnaðri ferð! Takk fyrir mig!
12.2.04
Ég vil benda heiminum á nýja bloggið hans Elíasar, skemmtileg viðbót við bloggheiminn. Haha, ég ætla í markaðsfræði. Annars er ég á leið til Stokkhólms í kvöld en er samt að pæla í að fara aðeins út í kvöld, bara smá. Ég þarf hvort eð er að vakna það snemma að það munar engu. Einhverra hluta vegna er ég ekki orðin mjög spennt vegna utanlandsfararinnar, kannski vegna þess að ég á eftir að læra í nokkra klukkutíma áður en ég geri nokkuð. :(
Verður samt gaman að kaupa föt...vúhú!
11.2.04
Dagurinn í dag er eiginlega ekki minn dagur, held ég. Fyrir það fyrsta þurfti ég að vakna fyrir allar aldir (rétt fyrir klukkan átta sem sé, fyrir allar aldir í mínum huga) og drífa mig upp í skóla að klára fyrirlestur. Þegar ég var rétt að vakna fannst mér ég ver að fá gubbupest og langaði sko ekki á fætur. Gubbupestarímyndunin yfirgaf fljótt huga minn þegar ég kom í skólann og fékk mér að borða allt nestið mitt, btw. :) Jæja, skóladagurinn var ekkert merkilegur, fyrirlesturinn ok og svo hitti ég ítalska tungumálaskiptastrákinn "minn". Ákveðum við Freyja svo ekki að fara í Bónus og versla fyrir Grælandskynninguna. Allt í góðu með það þangað til á leiðinni heim að kexpakki hrökk upp úr skólatöskunni minni og á eftir honum ALLT skóladótið mitt. Nú á ég bara blautar bækur og skítug og krumpuð verkefnablöð (þau fuku út um allt og ég tók bíómyndaaksjón á þetta). Núna sit ég hundpirruð að læra fyrir viðskiptaspænskupróf, þreytt og búin að uppgötva að gubbupestin er ekki gubbupest heldur hálsverkur. Ímyndunarveiki eða hvað?
10.2.04
Ég held að leti mín nái engum takmörkum. Það er ótrúlegt hvað fólk tekur upp slæma siði þegar það býr erlendis. Í stað þess að eyða kvöldinu í að skrifa góðan fyrirlestur um klámmyndina Pepi, Luci, Bom fyrir spænska kvikmyndakúrsinn eyddi ég kvöldinu á Netinu (í óþökk mömmu) og spjallaði við Jordi, Völllu, Ösp og fleiri. Það hjálpaði örlítið að tala við Völlu sem að eigin sögn var jafnlöt en þegar ég loksins tók til við að skrifa um þessa mynd og lesa mér til um Almodóvar var komið miðnætti og vel það. En svo að ég segi ykkur aðeins frá myndinni, þá er hún klikkuð. Hún fjallar um konu sem er nauðgað af lögreglumanni. Henni sárnar þessi meðferð mjög þar sem hún hafði hugsað sér að selja meydóm sinn til að eiga fyrir reikningunum (pabbi hennar hyggst hætta að senda henni mánaðarlegan tékka) og ákveður því að hefna sín. Hún lemur mann, sem var svo óvart ekki lögreglumaðurinn (ef ég skildi rétt) heldur bróðir hans. Svo kynnist hún konu löggunnar,Luci, sem er húsmóðir haldin kvalalosta. Þegar húsmóðirinn situr á heimili fórnarlambs nauðgunarinnar (sú heitir Pepi btw) og kennir henni að prjóna kemur sextán ára rokksöngkonan Bom, vinkona Pepi, í heimsókn og pissar framan í Luci sem er ekki lítið hrifin. Svona heldur myndin áfram...annað markvert má nefna partý þar sem haldin er typpakeppni, tónleika og fjöldan allan af dragdrottningum sem við sögu koma. Ég held satt best að segja að þessi mynd sé fullkomið dæmi um þá frelsisvakningu sem varð í spænskri kvikmyndagerð og ef til vill menningu yfirleitt eftir Frankó...úff, er ég orðin of fræðileg?
9.2.04
Fúff, þetta var sko fín helgi. Ég lærði ekkert af viti, borðaði mikið og skemmti mér mest. Föstudagskvöldið var, eins og áður hefur komið fram, skemmtilegt og ekki var laugardagskvöldið síðra. Þá var vinnupartý hjá ÁTVR-liðum heima hjá Eymari "la stewardais" í Skipasundinu, fámenn veisla en afar góðmenn. Planið var að veislugestir myndu fara í Keiluhöllina í Öskjuhlíð og keppa í keilu með fallegu borðana sem Marta bjó til bundna um sig miðja en því miður varð ekkert úr því. Við fórum upp í Keiluhöll og sátum þar drjúga stund en tókum svo bara leigubíl niður í bæ þar sem okkur var hleypt inn VIP-megin á Felix. Snjallt það! Aldrei hélt ég að ég fengi að sleppa við röðina! Elías slóst já í för og dansað var fram á rauða nótt, bæði þar og á Hverfisbarnum. Hrós helgarinnar fá Marta og Eymar fyrir vel heppnað teiti og Elías fyrir ótrúlegt dansúthald!
7.2.04
Jæja, föstudagskvöldið endaði í smádjammi og satt best að segja skemmti ég mér bara nokkuð vel. Fyrst um kvöldið hitti ég Freyju, Völlu, Ösp og Ásdísi á kaffihúsi og þaðan fórum við Ösp og Elías áfram á skrall. Vesalings Ösp var pínd áfram af frekum Langhyltingi (aka ég) og drifin í dansinn á svitaballi Röskvu á Grandrokk. Þar hittum við Eddu, Möggu og Jónas Magnússon og komumst að því eftir villtan dans að samkoman bar nafn með rentu. Þegar heim var komið byrjuðu samt ævintýrin. Alma átvagl var vitanlega svöng eftir að hafa hrist spikið í takt við tónlistina í klukkutíma eða svo og hóf því fæðuleit. Nei, ísskápurinn bauð ekki upp á mikið, ekki heldur skápurinn fyrir ofan matarborðið svo að Alma ákveður að kíkja í stóra háa skápinn. Sá skápur ákvað að gera árás með sultukrukku, sem skoppaði út á gólf og vakti mömmu. Þarf vitanlega ekki að taka fram að sultukrukkan mölbrotnaði og ég eyddi drjúgri stund í að þrífa upp sultu og glerbrot (fremur leiðinleg blanda btw) og plokka glerögn úr hælnum á mér. Samlokan sem ég fékk mér á endanum smakkaðist samt vel.
5.2.04
Death by a heart attack during an orgy... and
pretty soon
Choose your Dramatic Death (Now w/pics!!)
brought to you by Quizilla
Ég ætla að nýta hluta af mínútunum átján sem ég hef á Internetinu til að blogga. Reyndar veit ég eiginlega ekki um hvað ég ætti að blogga, líf mitt snýst orðið bara um það að fara í skólann og koma heim og læra, eða það sem oftar vill verða, ekki læra. Nú þegar ég er ansi mikið eftir á og ég vil helst ekki hugsa til þess hvernig það verður eftir utanlandsferðirnar sem ég fer í. Annars er það að frétta að Óli fékk íbúðina sína afhenta á sunnudagskvöldið og er þegar byrjaður að mála og koma öllu í standið. Vonandi flytur hann inn í vikunni svo að við Sigga getum byrjað að skipta um herbergi. JÁ ÉG FÆ NÝTT HERBERGI! Vá, hvað þetta er annars leiðinlegt blogg...fúff, fúff.
2.2.04
Jæja, Valgerður hér færðu svarið við spurningu þinni. Ferðin var hreint út sagt ágæt. Reyndar stoppuðum við afar stutt á þessu Grand rokk djammi, kíktum bara rétt þangað. Við eyddum meirihluta kvöldsins á Kofa Tómasar frænda og svo á Hverfisbarnum. Antton Finni var með í för og alls ekki aumur félagsskapur það, kurteis og góður piltur. Jæja, amma gamla kveður. :)
27.1.04
Það verður seint borið upp á mig að vera spéhrædd er ég hrædd um. Gegnum tíðina hef ég verið dugleg að bera bossa minn (já, þetta er ýkt) fyrir mönnum og konum sem á vegi mínum verða og það meira að segja án þess að fá borgun fyrir. (Ég sem sé strippa ekki á Óðal eða Bóhem, bara í búningsklefum leikfimihúsa, við stóra gardínulausa glugga og þess háttar). Nú er ég hins vegar farin að hugsa um að hætta þessum strípilátum og er einnig að velta fyrir mér að hafa samband við Íslanspóst og fá á hreint að póstmönnum fyrirtækisins sé boðið upp á áfallahjálp ef þörf krefur. Svo er nefnilega mál með vexti að í gærkveldi var ég heima í rólegheitum, skellti mér í bað og lá svo fyrir framan sjónvarpið í baðsloppi með handklæði vafið um hárlubbann og hauslíkið. Hljómar þá ekki dyrabjallan. Ég geng að sjálfsögðu til dyra eins og ég klædd og á móti mér kemur vægast sagt skelkaður maður sem neitar að trúa því að hafa hringt á réttu bjölluna. Ef þennan mann hefur ekki dreymt illa, veit ég ekki hvað. Hvort ástæðan er hræðsla við ungdömur í baðsloppum einum fata eða það að ég hef viðrað klobbann eða hrist út öðru brjóstinu fæ ég aldrei að vita.
26.1.04
24.1.04
20.1.04
Ég er eiginlega dálítið áhyggjufull í dag. Maðurinn sem ég hélt að væri orðinn strætófélagi var ekki í strætó. Reyndar er ég ekki hundrað og fimmtíu prósent viss þar sem ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var rétt að koma í skólann að eitthvað hefði vantað, það væri gap í lífi mínu. Ég hef reyndar ekki talað við þennan strætófélaga minn en hann, eins og ég, tekur alltaf 9.30 vagninn í átt að miðbænum. Hann býr í háu blokkinni og kemur yfirleitt út á stoppustöð um það bil tveimur mínútum á eftir mér. Ætli hann hafi misst af vagninum í dag? Eða er hann kannski veikur? Kannski er hann bara "stollllker" á eftir mér sem safnar persónuupplýsingum um mig og er búinn að hakka sig inn á nemendasvæði mitt í Háskólanum. Það er kannski líklegri skýring. Í dag hefði ég nefnilega getað sofið út þar sem kennarinn minn var veikur en setti ekki tilkynningu um það fyrr en í morgun á Netið. Herra strætófélagi hefur örugglega lesið það og ákveðið að fara bara í 11.30 vagninn. Sorrý, herra, þarna gabbaði ég þig!
19.1.04
Fúff, ég er að krepera í Rómönsku Ameríku kúrsinum. Það er ekki nóg með að við þurfum að lesa alveg hræðilega mikið (auðvitað er ég ekki búin með nema svona helminginn) heldur er kennarinn ekki minn. Leiðinlegt að segja það en ég bara ,,fíla" manninn ekki, engan veginn. Hann er eflaust góður maður, neita því ekki, en mig langar að kroppa af mér skinnið í tímunum hjá honum. Þetta jákvæða hugarfar sem ég reyndi að temja mér í upphafi kennslu endist illa.
Annars var ég að skoða bloggið hennar Aletheu, sem er Bandói, og skoðaði út frá hennar bloggi, alls konar linka hjá fólki sem ég man eftir úr Complutense og öðrum Bandóum. Gaman að fá svona campusfíling.